Hokkíleikjum frestað

Mynd: Sigurgeir Haraldsson (27.10.2012)
Mynd: Sigurgeir Haraldsson (27.10.2012)


Hokkíleikjum sem voru á dagskránni síðdegis í dag og í kvöld hefur verið frestað af mótanefnd ÍHÍ.

Í kvöld áttu að mætast Jötnar og SR í mfl. karla og Ásynjur og SR í mfl. kvenna, en leikjunum hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Samkvæmt frétt á heimasíðu ÍHÍ verða nýir leikdagar gefnir út í breyttri mótaskrá á mánudaginn.

Það verður því hefðbundinn "almenningur" í dag, opið kl. 13-17.