Hrekkjavökuskautadiskó

Þorir þú?
Þorir þú?


Föstudagskvöldið 26. október verður meira fjör og skemmtilegra á skautadiskói hjá okkur en á venjulegum föstudagskvöldum. Við ætlum nefnilega að mæta í búningum - já, það verður hrekkjavökuskautadiskó.

Skautadiskóin hafa verið vinsæl meðal barna og unglinga, en að sjálfsögðu er fólk á öllum aldri velkomið í stuðið. Við deyfum ljósin, kveikjum á litlu diskókúlunum okkar og spilum vinsæla tónlist.

Þorir þú að mæta í búningi?