Hver man ekki eftir Kenny

Fjölmargir erlendir leikmenn hafa komið við sögu í íslensku deildinni á síðustu árum, misjafnlega eftirminnilegir.  Einn þeirra, Kenny Corp, sem spilaði með Skautafélagi Akureyrar á árunum 2000 - 2003 verður að teljast með þeim allra eftirminnilegustu karakterum okkur hefur sótt heim.

Kenny býr nú í Albany í New York fylki í Bandaríkjunum og starfar sem lestarstjóri í neðanjarðarkerfi Albany borgar.  Hann hefur áhuga á mótorhjólum og líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd tekur kappinn sig einstaklega vel út á fáknum... en getur ekki verið að Kenny hafi bætt eitthvað á sig síðan við sáum hann síðast hmm???