Karfan er tóm.
Íshokkímaður ársins 2010
Jón Benedikt Gíslason er fæddur árið 1983, er fyrirliði SA-Víkinga og fór fyrir sínu liði þegar það tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í spennandi úrslitakeppni gegn Birninum síðasta vor. Jón hefur einnig verið einn af lykilleikmönnum íslenska karlalandsliðsins síðasta áratuginn og ekki síst á heimsmeistaramótinu í vor þegar liðið tryggði sér bronsverðlaun í 2.deild sem er besti árangur Íslands frá upphafi. Jón hefur spilað hokkí frá unga aldri og hefur æft og spilað í Kanada, Finnlandi og Kína þar sem hann var atvinnumaður.
Jón hefur alla tíð lagt hart að sér við æfingar og þeir eru ófáir morgnarnir sem hann hefur mættur einn á ísinn á aukaæfingar. Jón leggur jafnframt sitt af mörkum til íþróttarinnar og uppbyggingarinnar, en hann þjálfar yngri flokka auk þess sem hann situr í stjórn íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar.
Íshokkíkonaársins 2010
Guðrún Kristín Blöndal er fædd árið 1976, er fyrirliði kvennaliðs SA-Valkyrja og hefur verið lykilleikmaður kvennaliðs Skautafélags Akureyrar undanfarin ár. Guðrún átti mikinn þátt í árangri liðsins á árinu þegar það tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í hreinum úrslitaleik gegn Birninum síðasta vor. Guðrún er jafnframt leikmaður íslenska kvennalandsliðsins og tekur nú þátt í undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Reykjavík vorið 2011.
Guðrún er mikil íþróttakona og hefur lagt hart að sér við æfingar síðustu misseri og hefur m.a. ein kvenna sótt allar æfingar með körlunum í old boys liði félagsins. Auk árangurs á ísnum hefur Guðrún lagt sitt af mörkum til íþróttarinnar í almennum félagsstörfum sem og í undirbúningi móta og uppbyggingu kvennahokkís.