Karfan er tóm.
Lokaumferð Íslandsmótsins fór fram á mánudagskvöldið. Ice Hunt var þegar búið að tryggja sér sigurinn á mótinu en baráttan stóð um þriðja sætið á milli Riddara og Víkinga þar sem Garpar voru búnir að tryggja sér annað sætið á mótinu.. Leikar fóru þannig að Riddarar sigruðu Ice Hunt örugglega 7 - 2 og tryggðu sér þriðja sætið og Garpar sigruðu Víkinga 6 - 4.
Lokastaðan á Íslandsmótinu
Íslandsmeistarar Ice Hunt
2. Garpar
3. Riddarar
4. Víkingar
Liðsmenn Ice Hunt eru Davíð Valsson Jóhann Björgvinsson Kristján Þorkelsson Rúnar Steingrímsson og Svanfríður Sigurðardóttir