Ísold Fönn gerði góða ferð til Ítalíu

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir
Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir

 Hin knáa Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir gerði góða ferð til Canazei á Ítalíu þar sem hún varð í þriðja sæti á alþjóðlegu klúbbamóti í dag. Mikil barátta var um efstu sætin og skildu aðeins nokkur stig efstu stúlkurnar að. Ísold fékk heildarskor uppá 28.58 stig og hæstu einkunn í component score eða 16,68 stig. Við óskum Ísold Fönn innilega til hamingju með árangurinn.