Ísold Fönn sigraði sinn flokk á Skate Celje

Ísold Fönn sigraði sinn flokk á Skate Celje í gær með  nýtt prógram og nýju stigameti í European Criterium mótaröðinni. Í flokknum hennar Cups I kláruðu 36 stúlkur frá 9 þjóðum keppni. Ísold bætti stigametið sitt í mótaröðinni um 3 stig og sigraði með 38.89 stigum.

Ísold sigrði sinn flokk cups II samanlagt á European Criterum á síðasta ári og stefnir hún í sömu átt með þessum frábæra árangri á mótinu í gær. European Criterium er 5 móta röð þar sem skautararnir safna sér stigum með árangari á mótunum. 

Til hamingju Ísold Fönn og fjölskylda með frábæran árangur.