Jólasýning Listhlaupadeildar SA

Listhlaupadeild Skautafélgs Akureyrar stendur fyrir hinni árlegu Jólasýningu sunnudaginn 19.des nk. kl: 17:30. Þar koma iðkendur okkar saman með töfrandi sýningu en á meðal iðkennda hjá LSA eru nokkrir af bestu skauturum landsins. Láttu ekki þessa frábæru sýningu fram hjá þér fara, sjón er sögu ríkari.
Miðasala fer fram á Stubbur appi en einnig er hægt að kaupa miða við hurð.
 
Samkvæmt sóttvarnarreglum þurfa allir 2015 og eldri að sýna fram á neikvætt hraðpróf sem má ekki vera eldra en 48 klst eða sýna fram á fyrri COVID sýkingu ( eldri en 14 daga og yngri en 180 daga).
 
Miðaverð:
Fullorðnir (20+) - 1.500 kr.
12-20 ára : 1.000 kr.
6-11 ára : 500 kr.
5 ára og yngri : Frítt
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.