Jötnar mæta Húnum í kvöld

Mynd: Sigurgeir Haraldsson (20.12.2011)
Mynd: Sigurgeir Haraldsson (20.12.2011)


Í kvöld kl. 19.30 fer fram einn leikur í mfl. karla á Íslandsmótinu í íshokkí. Jötnar og Húnar mætast í Skautahöllinni á Akureyri.

Búast má við hörkuleik á milli þessara eiginlegu B-liða SA og Bjarnarins, sem væntanlega munu berjast um sigur í "neðri deildinni" þegar líður á veturinn.

Jötnar hafa náð sér í 12 stig í fimm leikjum og Húnar eru með 11 stig eftir sex leiki. Þessi sömu lið mættust í Egilshöllinni í lok september og þá fóru Jötnar með sigur af hólmi í miklum markaleik, 6-13. 

Tölfræði mfl. kk (ÍHÍ)
Staðan, mfl. kk. (ÍHÍ)