Júlía Rós setti met á Grand Prix

Júlía Rós Viðarsdóttir bætti besta árangur Íslendinga á Junior Grand Prix í Courchevel í Frakklandi nú á föstudag þegar hún náði 111,54 stig og náði 16. sæti. Hún átti góðan dag og skautaði fallegt prógramm, endaði með 72,19 stig fyrir free prógrammið og lenti þar í 13. sæti og samtals eftir bæði prógrömm fékk hún 111,54 stig.

Ævintýrið er ekki á enda heldur skautar Júlía á öðru Granx Prix móti sem fram fer í Courchecevel á fimmtudag og föstudag.

Við óskum Júlíu innilega til hamingju með þennan flotta árangur og hlökkum til að fylgjast með henni keppa á Grand Prix 2 og við bendum á facebook síðu Júlíu Rósar þar sem hægt er að fylgjast með öllu ævintýrinu.