Kjör á krullumanni ársins


Nú líður að því að krullufólk velji krullara ársins úr sínum röðum innan krulludeildar SA. Allt það krullufólk sem spilað hefur í mótum á vegum deildarinnar á árinu 2012 er í kjöri og getur kosið.

Valið fer þannig fram að á atkvæðaseðli er listi yfir alla þátttakendur (innlenda) á krullumótum ársins 2012. Velja skal þrjá úr þeim hópi og raða í 1., 2. og 3. sæti. Atkvæðaseðlum verður dreift í krullutímum næstu tvær vikurnar, en síðasti skiladagur atkvæðaseðla er miðvikudagskvöldið 12. desember. Einnig er hægt að opna atkvæðaseðil hér (pdf-skjal), prenta út og afhenda formanni deildarinnar.