Krulla: Gimli Cup hefst 29. október

Mynd: Haraldur Ingólfsson
Mynd: Haraldur Ingólfsson


Akureyrarmótinu í krullu lýkur mánudagskvöldið 22 október. Næsta mót, Gimli Cup, hefst strax viku síðar, mánudagskvöldið 29. október. 

Nú er aðeins ein umferð eftir af Akureyrarmótinu, og fer hún fram mánudagskvöldið 22. október. Það er því ekki seinna vænna að gera upp þátttökugjaldið ef einhver lið eiga það eftir - reikn. 0302-13-306209, kt. 620911-1000, setjið nafn liðs og móts í skýringu.

Keppnisfyrirkomulagið á Gimli Cup verður ákveðið endanlega þegar í ljós kemur hve mörg lið skrá sig til leiks. Annað hvort verður leikið í einum riðli, allir gegn öllum, eða skipt í tvo riðla og síðan leikið til úrslita.

Skráning fer fram í gegnum sérstakt skráningarform á netinu. Síðasti skráningardagur er sunnudagurinn 28. október. Þátttökugjald er 7.000 krónur á lið.