Kvennahokkí hjá SA í mikilli sókn

Margrét Vilhjálmsdóttir í marki SA í ham
Margrét Vilhjálmsdóttir í marki SA í ham

Sífellt fjölgar konum í íshokkí hér á landi og nú er svo komið að fjöldi leikmanna hjá SA hefur svo aukist á síðustu árum að félagið teflir nú fram tveimur liðum í kvennaflokki.  Hefur liðunum verið skipt í eldri og yngri en auk þessara leikmanna er margar stúlkur til viðbótar í yngri flokkum.  SA tilkynnit inn til ÍHÍ eftirfarandi tvö lið (birt með fyrirvara um einhverjar breytingar):

SA eldri              

Katrín Hrund Ryan             
Arndís Sigurðardóttir          
Guðrún Blöndal                 
Hrund Thorlacius               
Jónína Guðbjartsdóttir                  
Rósa Guðjónsdóttir            
Sonja Dögg Jónsdóttir                  
Sarah Smiley          
Jóhanna Sigurbjörg Ólafsdóttir                
Vigdís Aradóttir                 
Sigrún Sigmundsdóttir                  
Anna Sonja Ágústsdóttir

SA yngri

      
Díana Mjöll Björgvinsdóttir   
Eva María Karvelsdóttir       
Silja Rún Gunnlaugsson       
Guðrún Marín Viðarsdóttir   
Vedis Áuslaugsdóttir 
Þorbjörg Eva Geirsdóttir     
Thelma María Guðmundsdóttir       
Kristín Björg Jónsdóttir       
Diljá Sif Björgvinsdóttir       
Bergþóra Bergþórsdóttir     
Sylvía Rán Söebech Gunnlaugsdóttir
Margrét Arna Vilhjálmsdóttir 

Þetta er gríðarlega jákvæð þróun ekki síst núna þegar kvennahokkí á Íslandi fagnar nú 10 ára afmæli.  Björninn og SA hafa barist um titilinn frá upphafi en SR tefldi fram kvennaliði eitt tímabil. 

Í gærkvöldi hófst Íslandsmótið í kvennahokkí með leik SA yngri gegn Birninum og skemmst frá því að segja að Björninn vann nokkuð auðveldan sigur á óreyndum SA stelpum en engu að síður var um mjög góða framraun að ræða hjá stelpunum.  Flestar þeirra hafa litla sem enga leikreynslu og voru óöruggar í fyrstu en óx kjarkur eftir því sem leið á leikinn og mátti sjá greinileg batamerki.  Björninn vann 7 - 1, en okkar stelpur eiga eftir að bæta sig eftir því sem líður á veturinn og munurinn á milli liðinna mun minnka.

 

Meðfylgjandi mynd tók Ásgrímur Ágústsson hirðljósmyndari félagsins, en hann á eina afastelpu í liðinu, Bergþóru Bergþórsdóttur.  Þess má svo til gamans geta að hann á einnig barnabarn í eldra liðinu því þar leikur Anna Sonja Ágústsdóttir.