Leikur í Mfl. karla í kvöld í Laugardalnum.

SA-Víkingar eru mættir í Laugardalinn og eru byrjaðir að undirbúa sig fyrir leikinn.

Leiknum verður lýst á mbl.is

Þegar þetta er skrifað er réttur klukkutími í leik. Leikurinn er Víkingum afar mikilvægur því með sigri eru þeir komnir með "annann fótinn" í úrslitin en tap í leiknum setur þá upp að vegg í þeim skilningi að þá verða þeir að vinna alla þrjá leikina sem eftir eru. SR og Víkingar hafa spila tvo leiki í vetur gegn hvort öðrum og báðir voru á heimavelli Víkinga og SR vann báða svo nú reynir á norðan menn hvort þeir geti goldið í sömu mynt eða hvort SRingar skella þeim í þriðja sinn. Víst er að bæði lið munu gefa sig alla í leikinn og ætla sér sigur, algjör topp spenna !    ÁFRAM SA .........