Lukkupakkasala og fl. v. vorsýningar.

Foreldrar og forráðamenn barna í listhlaupadeild.

Viljum minna ykkur á foreldrafélag deildarinnar. Á vorsýningunni verðum við með fjáröflun þar sem seldir eru lukkupakkar ( 400 kr stykkið). Í pökkunum eru gjafir frá ýmsum fyrirtækjum í bænum. Einnig erum við með kaffisölu í hléi (ódýrasta kaffihúsið í bænum). Ágóðinn af fjáröflun foreldrafélags er notaður til að lækka kostnað við ferðir, styrkja börn í skautabúðir, halda pizzuveislur, vorslútt o.fl.

Stefnum á vorgleði 9. maí í Kjarnaskógi ef veður leyfir, nánar auglýst síðar og bendum ykkur á að fylgjast með heimasíðunni (sasport.is/ listhlaupadeild).

Fyrir hönd foreldrafélags;  Jóhanna K. Kristjánsdóttir.