Karfan er tóm.
Af þeim leikmönnum sem liðið hefur bætt við sig má fyrst og fremst nefna fyrrverandi fyrirliða liðsins Andra Má Mikaelson sem hefur snúið aftur heim eftir eins árs dvöl hjá liðinu Åseda í Svíþjóð. Þá hefur Helgi Gunnlaugsson snúið aftur úr heldri manna hokkí og mun leika en ekki bara æfa með Víkingum þetta árið. Varnarmaðurinn Jay Le Blanc bættist við hópinn en hann kemur frá Texas í Bandaríkjunum líkt og Ben Dimarco og Rett Vossler sem spila einnig áfram með Víkingum í ár. Þá kemur Einar Valentin aftur inn í hópinn og Gunnar Darri Sigurðsson er kominn á fulla ferð eftir að hafa verið meiddur síðari hluta tímabilsins í fyrra.
Svo eru nokkur spurningmerki um leikmenn sem gætu bæst við hópinn síðar meir en það eru markahrókurinn Stefán Hrafnsson og Sigmundur Rúnar Sveinsson sem hafa enn ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort þeir spili með liðinu í vetur.
Liðið hefur misst Hafþór Sigrúnarson frá því í fyrra en hann mun leika með unglingaliði IFK Ore í efstu deild í Svíþjóð.
Liðið hefur einnig misst Steinar Grettison frá síðasta tímabili en hann hefur flust til Reykjavíkur og Andri Freyr Sverrisson er farinn til Danmerkur en von er um að hann snúi aftur eftir áramótin.
Hópurinn lýtur því svona út:
Markmenn:
Einar Eyland
Rett Vossler
Varnarmenn:
Ingvar Þór Jónsson
Björn Már Jakobsson
Ingþór Árnason
Orri Blöndal
Ingólfur Elíasson
Jay Le Blanc
Sóknarmenn:
Gunnar Darri Sigurðsson
Jón Benedikt Gíslason
Ben Dimarco
Jóhann Már Leifsson
Andri Már Mikealson
Sigurður Reynisson
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Helgi Gunnlaugsson
Einar Valentin