Maríómótið

Aðeins fjögur lið, Fífur, Garpar, Mammútar og Víkingar skráðu sig til keppni á Maríómótinu.Lítil þátttaka virðist ætla að vera í Maríómótinu að þessu sinni þar sem aðeins fjögur lið tilkynntu þátttöku. Þeir liðsmenn í þeim liðum sem ekki hafa tilkynnt þátttöku en hafa áhuga á að taka þátt þótt þeir séu ekki með sínu liði geta sent mér tölvupóst á hallgrimur@isl.is sem allra fyrst.  Við reynum að búa til lið úr þeim hópi ef til kemur.