Marta María Jóhannsdóttir keppir fyrir Íslands hönd á JGP í Kaunas í Litháen

Marta María er lögð af stað ásamt Þjálfaranum sínum, Darja Zajcenko til Kaunas í Litháen þar sem hún mun taka þátt fyrir Íslands hönd á Junior Grand Prix (JGP) á fimmtudag og föstudag. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Marta María tekur þátt í JGP mótaröðinni. Ekki hefur verið dregið í keppnisröð, en flokkurinn hennar hefur keppni kl. 18:00 að staðartíma á fimmtudaginn með stutta prógrammið. Keppni heldur svo áfram kl. 17:30 á föstudaginn. Kaunas er þrem tímum á undan okkur í tíma, sem þýðir að keppni hefst kl. 15:00 á fimmtudaginn og 14:30 á föstudaginn.

Við óskum Mörtu Maríu og Dörju góðrar ferðar og Mörtu Maríu góðs gengis á mótinu. 

Við fylgjumst öll með á live stream og sendum góða strauma út til Kaunas. Hér er hægt að fylgjast með mótinu.