Norðurlandamótið í listhlaupi hófst í dag

Landsliðshópurinn á NM (mynd:Iceskate)
Landsliðshópurinn á NM (mynd:Iceskate)

Norðurlandamótið í listhlaupi sem fram fer í Hørsholm í Danmörku hófst í dag en við eigum fjórar stúlkur í landsliðshópnum. Freydí Jóna Jing Bergsveinsdóttir og Sædís Heba Guðmundsdóttir hófu keppni í dag í stutta prógraminu í Advanced Novice og stóðu sig báðar með prýði. Síðar í dag mun Júlía Rós Viðarsdóttir skauta stutta prógramið sitt í Junior flokki og Aldís Kara Bergsdóttir hefur svo leik í Senior flokki á laugardag þar sem hún hefur tækifæri á að ná lágmörkum fyrir Heimsmeistaramótið. Streymt er frá mótinu og ýttið hér á hlekkina til að sjá dagskránna og stig. Áfram Ísland.