31.10.2006
Skautafélagi Akureyri hefur nú borist liðsstyrkur fyrir komandi átök. Ungur Tékki, búsettur hér á Akureyri rak óvænt á fjörur félagins á dögunum og var honum umsvifalaust troðið í skauta og rétt kylfa í hönd. Kappinn starfar í byggingariðnaði og heitir Tomas Fiala og er 23 ára gamall. Hann hefur reyndar ekki spilað hokkí í rúmt ár en spilaði síðast í 2. deild í Tékklandi. Hann virðist engu að síður vera liðtækur á ísnum og mun væntanlega styrkja sóknina í vetur.