Nýtt mót, önnur umferð í kvöld


Ekki of seint að skrá sig og hefja keppni núna þótt mótið sé hafið.

Nýtt mót hófst miðvikudagskvöldið 1. febrúar og verður haldið áfram í kvöld, miðvikudagskvöldið 8. febrúar. Mótið er með frjálslegu sniði, þrír leikmenn spila í hverju liði hverju sinni, aðeins sex steinar eru notaðir. Þetta er gert til að auðvelda mætingu og stytta leiktímann.

Liðin sem þegar hafa skráð sig og mætt til keppni:
A: Björn Sigmundsson, Jón G. Rögnvaldsson
B: Heiðdís Björk Karlsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir,  Svanfríður Sigurðardóttir
C: Árni Grétar Árnason, Davíð Valsson, Hallgrímur Valsson, Kristján Þorkelsson
D: Haraldur Ingólfsson, Kristján Bjarnason, Rúnar Steingrímsson

Í fyrstu umferð urðu úrslit þessi:

  1 2 3 4 5 6 X Ú
 A  1     1 1 2   5
 D    1 3         4

 

  1 2 3 4 5 6 X Ú
 B  1             1
 C    1 3  1 1 1   7


Eins og áður hefur komið fram verður leikjadagskráin nokkuð sveigjanleg, eftir mætingu hverju sinni. Það er því allt í lagi fyrir það krullufólk sem ekki mætti fyrsta kvöldið og/eða er ekki tilbúið með fullt lið, að mæta í kvöld og hefja þátttöku í mótinu.