Old Boys með silfur í Egilshöllinni

Myndin er frá Iceland Ice Hockey Cup 2011 (EFP).
Myndin er frá Iceland Ice Hockey Cup 2011 (EFP).


Strákarnir í SA Old Boys gerðu sér lítið fyrir og unnu sinn riðil, en töpuðu síðan úrslitaleik B-deildar á Iceland Ice Hockey Cup í gær.

Keppnin í riðlinum var jöfn og spennandi, þrjú lið enduðu með 5 stig, en SA-strákarnir urðu efstir á markamun, voru með fjögur mörk í plús, en bæði erlendu liðin voru með tvö mörk í plús. SA Old Boys unnu Björninn, 6-2, en gerðu jafntefli við bæði erlendu liðin í riðlinum, 5-5 gegm kanadíska liðinu Mississauga Hawks og 2-2 gegn bandaríska liðinu Bucs frá New Jersey. Strákarnir léku síðan til úrslita við sigurvegara í C-riðlinum, kanadíska liðið Honey Badgers, en töpuðu þeim leik, 2-3. 

Á vef Bjarnarins má sjá úrslit allra leikja í karlaflokki