SA Víkingar fá Skautafélag Reykjavíkur í heimsókn um helgina

Það verður toppslagur í Hertz-deild karla á laugardag þegar SA Víkingar taka á móti Skautafélagi Reykjavíkur í Skautahöllinni Akureyri kl: 16:45. Bæði lið hafa unnið 2 leiki í deildinni og verður því hart barist um toppsætið. Miðaverð er 1000 kr. og frítt fyrir 16 ára og yngri. Forsala miða fer fram í gegnum miðasölu appið Stubb.