SA Víkingar hefja titilvörnina á laugardag

Orri Blöndal (mynd: Ási)
Orri Blöndal (mynd: Ási)

SA Víkingar hefja leik í Hertz-deildinni á laugardag þegar liðið tekur á móti SR í Skautahöllinni á Akureyri kl. 16.45. Lið SA Víkinga er mikið breytt frá síðasta tímabili og nýr þjálfari er komin í brúnna, Finninn Sami Lehtinen, sem hefur komið með nýjar áherslur í nýjan og yngri hóp leikmanna.

Frá síðasta tímabili hefur liðið misst sex leikmenn, erlendu leikmennirnir frá síðasta tímabili þeir Jordan, Adam, Thomas og þjálfarinn Jussi Sipponen hafa allir snúið til síns heima og verða ekki með liðinu í vetur. Þá lögðu Rúnar Freyr Rúnarsson og Jón Benedikt Gíslason báðir skautana á hilluna eftir síðasta tímabil. Skörðin eru að stórum hluta fyllt af ungum uppöldnum SA leikmönnum sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Liðið hefur einnig fengið unga leikmenn tilbaka erlendis frá en samið var við hinn 19 ára gamla Heiðar Krisveigarsson um að leika með liðinu í vetur en hann hefur spilað í Svíþjóð við góðan orðstír síðastliðin 4 ár og var valinn besti sóknarmaður Íslands á HM U-20 í vor. Heiðar lék síðast með Víkingum tímabilið 2015-2016 og skoraði þá 7 mörk í deildarkeppninni þrátt fyrir að vera aðeins 15 ára gamall. Róbert Hafberg 17 ára varnarmaður kemur nýr inn í liðið en hann spilaði með Smedjebacken í Svíþjóð í fyrra og er gríðarlega lunkinn leikmaður sem verður spennandi að fylgjast með þróuninni á í vetur. Hinn 19 ára Halldór Skúlasson er aftur komin í skautana eftir að hafa verið meira eða minna fjarrverandi frá sportinu í 2 ár vegna meiðsla en hann spilaði 14 leiki með Víkingum á árunum 2015-2017 og er mikil viðbót í varnarlínuna. Þá eru margir ungir leikmenn að berjast um stöður í liðinu og leikmenn úr hinum stóra og sterka 2002 árgangi hafa verið að spila með liðinu bæði í Lýsisbikar- og Evrópukeppninni þar sem þeir hafa fengið eldskírn og sýnt hvers þeir eru megnugir. Markmennirnir Róbert Steingrímsson og Jakob Jóhannesson fá loksins tækifæri á að verja búrið sem fyrstu kostir en báðir tveir vöktu nokkra athygli fyrir frammistöðu sína í Evrópukeppninni í Tyrklandi um síðustu helgi.

Það er spennandi tímabil framundan og þrátt fyrir mannabreytingar er kjarninn frá síðasta tímabili er að stórum hluta sá sami. Liðið sýndi í Evrópukeppninni að það er fært í flestan sjó og eru til alls líklegt. Þá eru nýjar áherslur hjá þjálfaranum finnska smám saman að taka á sig mynd og verður skemmtilegt að sjá hvernig þær koma út. Við hvetjum fólk til þess að mæta í höllina á laugardag og flykjast á bak við liðið en miðinn kostar litlar 1000 kr. og ársmiðar verða til sölu í anddyrinu.