Karfan er tóm.
Um síðustu helgi fór fram hér á Akureyri svo kallaður „Tvíhöfði“ í 2.flokki karla. SA mætti SR fyrst á laugardeginum kl. 19,00 og svo á sunnudeginum á sama tíma.
Fyrri leikurinn tapaðist með 4 mörkum gegn 6. SR-ingar áttu fyrstu lotuna skuldlaust (1-4) aðra lotuna átti SA (2-1) og jafnræði var með liðunum í þeirri þriðju (1-1).
Mörk og stoðsendingar,
Ingþór 2/0, Baldvin 1/0, Matti 1/0, Heiðar 0/3, Siggi Reynis 0/2, Róbert 0/1
SA átti 43 skot á mark en SR 19, refsingar SA 6 mín. en SR 34mín
Seinni leikurinn vannst hinsvegar með 5 mörkum gegn 3 (3-1)(0-1)(2-1)
Mörk og stoðsendingar,
Siggi Reynis 3/1, Ingþór 1/3, Siggi Þorsteins 1/0
SA átti 39 skot á mark en SR 24, refsingar SA 8 mín. en SR 14mín
Nánari tölulegar upplýsingar má finna hér og stöðuna í 2.flokki er að finna hér