Síðasti dagur heimsmeistaramótsins í dag

Í dag er síðasti dagur Heimsmeistaramótsins í íshokkí, II deild b-riðill sem fram fer í hér í Skautahöllinni á Akureyri. Leik Tyrklands og Króatíu var að ljúka með 5 - 2 sigri Tyrkja og núna kl. 13:30 hefst grannaslagurinn hjá Áströlum og Nýsjálendingum.

Kl 17:00 er svo lokaleikur mótsins þegar Ísland tekur á móti Úkraínu. Leikurinn hefur ekki mikið að segja um loka niðurstöðu mótsins, en Úkraína berst þar fyrir veru sinni í riðlinum. Úkraína er aðeins með tvö stig eftir tvö jafntefli og fellur þá niður um deild eftir tap gegn Íslandi. Ísland er hins vegar annað hvort í 2. eða 3. sæti, eftir því hvernig leikar fara hjá Ástralíu og Nýja Sjálandi, að því gefnu að við vinnum Úkraínu auðvitað.

Í dag er því síðasti séns að koma hingað í Skautahöllina og taka þátt í þessu frábæra viðburði - endilega fjölmennum í Innbæinn og hvetjum okkar lið - Áfram Ísland!