Sigur í fyrsta leik

Fyrsti leikur meistaraflokks kvenna fór fram í Egilshöll í dag þar sem SA mætti nýju liði Fjölnis. Reykjavíkurliðin tvö leika nú ekki lengur saman heldur tefla fram tveimur liðum. Nokkrar breytingar hafa orðið á liði SA þar sem nokkrir reynsluboltar leika nú ekki með (hvað sem síðar verður) en Saga Blöndal, Alda Ólína Arnarsdóttir, Diljá Sif Björgvinsdóttir og Védís Valdemarsdóttir spila nú aftur með liðinu eftir mislanga dvöl með öðrum liðum. Leiknum lauk með 5:3 sigri SA.

Fyrsta mark SA kom eftir tæpa eina og hálfa mínútu þegar Ragga kom pekkinum í netið eftir stoðsendingu frá Arndísi. Þegar um fimm og hálf mínúta var eftir af fyrstu lotu skoraði svo Diljá eftir stoðsendingu frá Kolbrúnu og Ingu. SA stúlkur sóttu mest alla lotuna. 

Fjölnisstúlkur komu ákveðnari til leiks í annarri lotu en það var samt Védís sem kom SA þremur mörkum yfir í upphafi lotunnar, Eva og María áttu stoðsendingu. Fjölnir hélt áfram að sækja stíft og náðu að minnka muninn í 1:3 þegar lotan var rúmlega hálfnuð. Þær bættu síðan öðru marki við þegar rúmar 5 mínútur voru eftir af lotunni og staðan 2:3 og þannig var staðan í lok lotunnar.

Stelpurnar komu ákveðnar inn í þriðju lotuna og náðu að skora snemma í lotunni þrátt fyrir að vera leikmanni færri. Það var Kolbrún sem kom pekkinum í netið með stoðsendingu frá Jónínu. Þegar leikhlutinn var tæplega hálfnaður skoraði Diljá fimmta mark SA stúlkna með glæsilegu skoti. Stoðsendingu átti Kolbrún. Fjölnisstúlkur náðu að minnka muninn í 3:5 þegar fjórar og hálf mínúta voru til leiksloka og urðu það lokatölur í leiknum.

SA spilaði í heildina nokkuð vel þó það hafi komið slæmur kafli í annarri lotu. Línurnar eru að slípast saman og verður gaman að sjá hvernig framhaldið verður. Það er jákvætt að það skuli nú aftur vera þrjú lið í meistaraflokki kvenna því það merkir vonandi uppgangi í kvennahokkíinu. Rúnar F Rúnarsson þjálfari sagði eftir leikinn að þetta hefði verið frábær sigur liðsheildarinnar. Hann sagði að liðið hefði spilað jafnt á öllum línum og allar staðið sig með prýði. Þær hafi farið eftir skipulagi dagsins og bakkað hverja aðra upp í þau fáu skipti sem einhver gerði mistök.

Mörk (stoðsendingar): Kolbrún 1 (2), Diljá 2, Ragga 1, Védís 1, Arndís (1), Inga (1), Eva (1), María (1) og Jónína (1).

Birta stóð í markinu allan leikinn.