Skautafélag Akureyrar fagnar 80 ára afmæli mánudaginn 27. febrúar

Skautafélag Akureyrar fagnar 80 ára afmæli sínu mánudaginn 27. febrúar í félagsherbergi Skautahallarinnar frá kl 18.00. Öllum félagsmönnum og iðkenndum Skautafélagsins er boðið í veislunna en veislugestum er einnig boðið á fyrsta leik Íslands á HM kvenna sem hefst kl 20.00.

Dagskrá:

18.15 Opnun - Formaður SA opnar formlega afmælisveisluna

Veitingar

Viðurkenningar deilda

Viðurkenningar aðalstjórnar

Ræður og opið hús

19.30 Setningarathöfn HM kvenna

20.00 Ísland - Rúmenía á HM kvenna

Afmælisveislan færist úr fundarherberginu um kl 19.15 og eftir það verður að borga sig inn í húsið til þess að komast á leikinn.