Skautafjör um versló!

Listhlaupadeildin stendur fyrir skautadiskói og opnum almenningstímum um verslunarmannahelgina.

Föstudagskvöld 2. ágúst kl. 19.30-21.30: Skautaddiskó með dúndrandi danstónlist

Laugardagur 3. ágúst og sunnudagur 4. ágúst kl. 13-16: Stuð á skautum, grillaðar pylsur,andlitsmálning og leiðbeiningar með fyrstu "skautaskrefin".  Snilldarstúlkur úr Listhlaupadeild Skautafélags Akureyrar sýna listir sínar og leiðbeina.  

Aðgangur 1200 kr. fyrir fullorðna (skautar og hjálmur innifalið). Ódýrara ef þú kemur með eigin skauta.