Sögulegur seinni dagur á RIG

Verðlaunaafhengind Novice á RIG
Verðlaunaafhengind Novice á RIG
Sýnt var beint frá keppni á seinni degi RIG á Rúv í dag en þetta var í fysta skipti sem sýnt er beint frá móti í listhlaupi á Íslandi. Sigurganga SA stúlkna hèlt áfram á RIG í dag. Novice stúlkurnar okkar þrjár röðuðu sèr í þrjú efstu sætin eftir geysi harða innbirðis keppni.
 
Emilía Rós Ómarsdóttir bar sigur úr bítum með 71,87 stig. Í öðru sæti varð Marta María Jóhannsdóttir aðeins 0,09 stigum frá fyrsta sætinu með 71,78 stig og í þriðja sæti varð svo Pálína Höskuldsdóttir með 61,74 stig. 
 
Í junior flokki þurfti Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir að draga sig úr keppni vegna veikinda.
Það má með sanni segja að SA stelpurnar hafi gert góða ferð til borgarinnar og hafa þær allar, sem luku keppni, með sèr verðlaunapening heim. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn.