09.06.2005
Bandarísk sjónvarpsstöð hefur raðað 60
íþróttagreinum eftir því hversu erfiðar þær eru. Í efsta sæti eru
hnefaleikar og síðan koma íshokkí, amerískur fótbolti og körfubolti.
Knattspyrnan er í 10. sæti og síðan koma alpagreinar skíða í 11. sæti. Í
29. sæti er skíðastökkið og skíðagangan er í 31. sæti. Neðst á listanum er
stangveiði.