Fyrsti stelpuhokkídagurinn vel heppnaður Stelpur á öllum aldri fjölmenntu í Skautahöllina á laugardaginn og skemmtu sér saman á svellinu. Stelpurnar okkar tóku vel á móti nýliðum og þær voru leiddar inn í hinn spennandi heim íshokkís. Vonandi sjáum við sem flestar af þeim koma á byrjendaæfingar. Kærar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóginn til að gera þennan dag ánægjulegan.
Hér má svo skoða flreiri myndir.