Stjórn krulludeildar endurkjörin

Aðalfundur krulludeildar var haldinn miðvikudaginn 7 maí

15 manns sóttu fundinn sem er mun betri mæting en á síðasta aðalfundi.
Formaður og gjaldkeri fluttu sínar skýrslur og kom fram að deildin skilaði rúmlega 200 þúsund króna hagnaði á síðasta starfsári. Nokkrar umræður spunnust um félagsgjöld og æfingagjöld fyrir næsta tímabil. Samþykkt var að hafa félagsgjaldið kr. 2000 fyrir næsta tímabil

Stjórnin bauð sig fram til áframhaldandi setu og var hún einróma kjörin.
Stjórnina skipa:

  • Formaður Hallgrímur Valsson og aðrir í stjórn Ásgrímur Ágústsson Davíð Valsson Ólafur Hreinsson Ólafur Númason
  • Varamenn Eiríkur Bóasson og Gísli Kristinnsson
  • Stjórnin mun skipta með sér verkum á fyrsta stjórnafundi sem verður fljótlega