Styttist í fyrstu krullumót vetrarins

Akureyrarmótið hefst 28. september og Bikarmót Krulludeildar 14. október.

Lokafrestur til að tilkynna þátttöku í Akureyrarmótið er miðvikudagurinn 23. september. Mótið verður eingöngu spilað á mánudagskvöldum og hefst mánudaginn 28. september kl. 20.30. Tilkynningar um þátttöku sendist á netfangið hallgrimur@isl.is.

Bikarmót Krulludeildar hefst miðvikudaginn 14. októberog er frestur til að tilkynna þátttöku til 7. október, sama netfang.

Nánari upplýsingar um mótin verða settar á vefinn bráðlega.