Karfan er tóm.
Skráningar í skautaskólann fara fram á iba.felog.is
Skautaskóli listhlaupadeildar býður upp á 5 daga námskeið fyrir stelpur og stráka frá 4 ára aldri . Námskeiðið fer fram 8 – 14. júní ( frídagar laugardag og sunnudag).
Þátttakendur raðast niður í hópa eftir því hvort um er að ræða byrjendur/styttra eða lengra komna.
Námskeiðið inniheldur :
1x - 2x ístíma (alla daga) : Grunnskautun , jafnvægisæfingar , stökk tækni , píróettur
1x af-ís (fjóra daga vikunnar ef veður leyfir verður hann kenndur úti) : Styrking – Jafnvægis- æfingar – þol – liðleiki. Fjölbreyttar æfingar á hverjum degi.
1x í viku er fræðsla fyrir nýja
2 x í viku er fræðsla fyrir þá sem eru lengra komnir
Nestispása: Óskað er eftir að krakkar hafi með sér hollt og gott nesti alla daga.
Klæðnaður : Hlaupabuxur, hettulausar peysur/jakkar, fingravettlingar (nauðsynlegt að hafa aukapar) ,íþróttaskór, stílabók og liti, vatnsbrúsi og skautar. Gott er að hafa auka peysu ef af-ís æfingarnar verða úti.
Ef barn á ekki skauta er velkomið að fá lánaða á meðan námskeið stendur yfir
Námskeiðið er kennt frá klukkan 9 – 12 á daginn fyrir byrjendur og styttra komna
Fyrir lengra komna er kennt frá klukkan 9 – 13 á daginn.
Skráningar fara fram í Nora og þarf að ganga frá skráningu fyrir 2.júní . Vikan kostar 8.000 kr. fyrir styttra komna/byrjendur en 10.000 kr. fyrir lengra komna. Sjá á heimasíðu Listhlaupadeildar: http://www.sasport.is/listhlaup
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og í hvaða hóp þið eigið að skrá ykkar barn á yfirþjálfara Kristínu Helgu Hafþórsdóttur á thjalfari@listhlaup.is
Ítarlegar upplýsingar um markmið okkar fyrir báða hópa:
Markmið okkar er að gefa nýjum iðkendum kost á að kynnast íþróttinni okkar og læra þann grunn sem er nauðsynlegur fyrir listdans á skautum ásamt því að vera góður grunnur fyrir aðrar íþróttir.
Á af- ís verður einblínt á styrkingu – liðleika – snerpu – leiki – upphitun fyrir ístíma er kennd og margt fleira. Markmið með að bjóða upp á fræðslu er að hvetja hvern og einn til að tjá sig og sýnd verða myndbönd til fróðleiks, skautamyndir litaðar og margt fleira sem aldrei hefur áður verið boðið upp á fyrir þennan aldur.
Markmið okkar fyrir lengra komna er að gefa þeim kost á að komast enn frekar nær því tækifæri að komast upp í keppnisflokk C og verða æfingarnar útfærðar frá reglum Skautasambands Íslands og unnið í kringum aðalatriði sem þarf til að fá prógram (dans).
Á af ís verður styrkur – snerpa – liðleiki – stökktækni – jafnvægisæfingar ofl í fyrirrúmi, auk þess að upphitun fyrir ísæfingar verður tekin fyrir. Í fræðslu verður það markmið að við kynnum fyrir þeim nælukerfið og hvað þarf til að ná getustigi til að mega keppa á C móti fyrir hönd Skautafélags Akureyrar. Auk þess verður farið yfir reglur skautara, uppbygging sjálfstrausts, myndbönd verða sýnd til fróðleiks, kennt verður að setja sér raunhæf markmið og margt fleira.