Tveir mikilvægir leikir næsta Föstudag og Laugardag

Nú dregur til tíðinda. Á föstudaginn kl.20,00 og Laugardaginn kl.18,00 spila mfl. SA og SR um heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni.

Nú er mikið í húfi og nánast skyldumæting á leikina um helgina fyrir alla fjölskylduna.

Svo passið að lofa ykkur ekki í neitt annað !!!

Það að horfa á leiki er afar nauðsynlegt fyrir iðkendur til að öðlast yfirsýn og leikskilning. Tækifærin eru því miður ekki mörg fyrir krakkana til að sjá alvöru íshokkíleiki, en nú um helgina gefst einmitt gott tækifæri og afar mikilvægt fyrir krakkana og ekki síður meistaraflokkinn okkar að allir mæti nú sem einn maður og styðji strákana til sigurs.