Nú viðrum við hokkígallann og förum í sparifötin!!Íshokkísamband Íslands hefur skipulagt lokahátíð sem gefur íshokkímönnum og konum kost á að hittast og eiga skemmtilega kvöldstund saman. Veitt verða verðlaun fyrir árangur og afrek af ýmsum toga á leiktíðinni og nýliðinni heimsmeistarakeppni verður líka gerð skil. Óhætt er að segja að vinna og þrautsegja okkar allra á undanförnum árum hafi kristallast í frábærum árangri landsliðssins okkar.
Fjölmennum á lokahátíðina - Það er kominn tími til að íshokkímenn og konur í félögunum fjórum hittist á sameiginlegri uppgjörshátíð. Rúnar og Elvar munu sjá til þess að allir skemmti sér vel.
Staður:
Versalir við Hallveigarstíg, laugardaginn 13. maí næstkomandi.
Dagskrá:
Fordrykkur kl. 19
Borðhald hefst kl.19.30
Glæsilegt ítalskt hlaðborð
Miðaverð aðeins kr. 3.500
Miðapantanir sendist á
margret@samherji.is eða
kmaack@simnet.is Munið að sætaframboð er takmarkað þannig að ekki tefja það að panta öruggt sæti.