Karfan er tóm.
Víkingar heimsóttu SR í Laugardalinn í gærkvöldi. Jafnt að loknum venjulegum leiktíma, Jóhann Leifsson tryggði sigur í
framlenginu.
Bæði lið söknuðu reyndar sterkra leikmanna vegna meiðsla - en maður kemur í manns stað. Lars Foder kom Víkingum yfir í fyrsta leikhluta með stoðsendingu frá Stefáni Hrafnssyni. SR-ingar jöfnuðu snemma í öðrum leikhluta og þar var Steinar Veigarsson að verki. Andri Mikaelsson kom Víkingum aftur yfir í upphafi þriðja leikhluta, en Daníel Magnússon jafnaði þegar tæplega fimm mínútur voru eftir. Þar við sat í venjulegum leiktíma, en á fyrstu mínútu framlengingar skoraði Jóhann Leifsson og tryggði Víkingum 2-3 sigur í Laugardalnum.
Hér má smá: Leikmannalista, atvikalýsingu og stöðuna í deildinni (á vef ÍHÍ).
Víkingar - mörk/stoðsendingar
Lars Foder 1/2
Andri Mikaelsson 1/0
Jóhann Leifsson 1/0
Stefán Hrafnsson 0/1
Refsingar: 12 mínútur
SR - mörk/stoðsendingar
Steinar Veigarsson 1/0
Daníel Magnússon 1/0
Egill Þormóðsson 1/1
Refsingar: 12 mínútur
Næsti leikur Víkinga verður þriðjudaginn 16. október þegar Bjarnarmenn koma í heimsókn norður.