Vorhátíð 4-7 flokks og byrjenda !

Jæja þá er vorhátíð yngri flokkanna búin.  Það mættu um í 50 krakkar og um 40 foreldrar og var mikið stuð.  Sara og Stebbi sáu um leiki í salnum og meðal annars þá kepptu foreldrar á móti börnum í þrautabraut og unnu börnin með sjónarmun!  Eftir leiki afhenti foreldrafélagið öllum iðkenndum hópmynd af sínum flokk, Ási ljósmyndari frá Norðurmynd tók myndir af öllum flokkunum og þökkum við honum kærlega fyrir.  Fyrir þá sem komust ekki á vorhátíðina þá er hægt að nálgast myndir hjá Söru þjálfara.  Eftir leiki var boðið upp á grillaðar pylsur, gos og eplasafa og síðan fóru þeir sem vildu í sund.  Vonum að allir hafi skemmt sér vel.

 Foreldrafélag Hokkídeildar S.A.  þakkar iðkenndum og foreldrum þeirra kærlega fyrir gott samstarf í vetur.

F.h. Foreldrafélags Hokkídeildar S.A.

Anna Kristveig Arnardóttir.