Vormót Krulludeildar


Mánudaginn 2. apríl hefst nýtt mót, spilað sem einstaklingskeppni og raðað í lið hverju sinni eftir mætingu.

Áætlaðir leikdagar eru 2. apríl, 11. apríl, 16. apríl, 18. apríl, 23. apríl og 25. apríl, hugsanlega einnig 9. apríl (annar í páskum). Mögulega munu einhverjir af þessum leikdögum falla niður.

Ekki þarf að skrá sig í mótið, aðeins að mæta á svellið. Krullufólk er hvatt til að taka með sér vini og vandamenn sem langar til að prófa því þetta er gott tækifæri til að fá smá innsýn í íþróttina og keppni í henni. Dregið verður saman í lið í fyrstu umferðinni, en síðan raðast saman í lið í hverri umferð út frá stöðunni hverju sinni. Nánari reglur, t.d. um lengd leikja o.fl. verða kynntar við upphaf mótsins.