Vormót Krulludeildar: Kiddi með afgerandi forystu


Kristján Þorkelsson tók afgerandi forystu í Vormótinu í gærkvöldi. Tvær umferðir eftir. Lokakvöldið 25. apríl.

Þess ber þó að geta að við endanlegan stigaútreikning eru það aðeins átta bestu skorin hjá hverjum keppanda sem gilda og því gætu einhverjir átt eftir að hífa sig upp töfluna og jafnvel ógna forystusauðnum.

Nú er aðeins eitt keppniskvöld eftir, en tvær umferðir verða leiknar miðvikudagskvöldið 25. apríl. Samtals verður mótið því tveimur umferðum lengra en áætlað var í upphafi - 14 umferðir - þar sem tvö mánudagskvöld hafa verið spilaðar þrjár umferðir í stað tveggja. 

Staða efstu manna (öll skor tekin með)
1. Kristján Þorkelsson, 165
2. Hallgrímur Valsson, 133
3. Gunnar H. Jóhannesson, 131
4. Jón Ingi Sigurðsson, 122
5. Jón Grétar Rögnvaldsson, 120

Sjá öll úrslit og stig í excel-skjali hér