Vormót Krulludeildar - spilað í kvöld


Í kvöld, miðvikudagskvöldið 11. apríl, verða spilaðar 3. og 4. umferð Vormóts Krulludeildar.

Mótið er opið öllum og keppt er með opnu fyrirkomulagi þannig að bæði vanir og óvanir geta mætt eins oft eða sjaldan og hentar og verið með. Keppt er með einstaklingsfyrirkomulagi, en samt raðað í lið. Hver keppandi tekur síðan með sér þau stig sem hans lið ávinnur sér í þeirri umferð. Reglur mótsins má finna í tengli (excel-skjali) í valmyndinni til vinstri.

Keppni hefst um kl. 20.30 í kvöld.