Karfan er tóm.
Í kvöld kl. 20.15 mæta Ynjur liði SR á Íslandsmótinu í íshokkí kvenna. Leikurinn fer fram í Skautahöllinni í
Laugardal.
Um stöðuna í deildarkeppninni þarf varla að fjölyrða. Ásynjur hafa þegar tryggt sér efsta sætið, hafa lokið leikjum sínum og eru með 34 stig. Ynjur eiga eftir leikinn í kvöld og annan leik, og hafa náð sér í 20 stig. Lokaleikur Ynja verður laugardaginn 2. mars þegar þær heimsækja SR aftur í Laugardalinn.
Við hvetjum SA-fólk í höfuðborginni til að mæta í Laugardalinn í kvöld og hvetja okkar lið.