Bikarmótið: Átta liða úrslitum lokið

Fífurnar leika gegn Víkingum og Riddarar gegn Skyttunum í undanúrslitum.

Átta liða úrslit Bikarmótsins fóru fram í gærkvöld. Riddarar, Víkingar, Skytturnar og Fífurnar tryggðu sér sæti í undanúrslitum. Riddarar sigruðu Svarta gengið 9-0, Víkingar sigruðu Norðan 12, 6-3, Skytturnar unnu Bragðarefi, 7-2, og Fífurnar lögðu Garpa, 9-6.

Eftir átta liða úrslitin í gærkvöld var dregið saman í undanúrslitin sem fara fram mánudagskvöldið 28. janúar.

Braut 2: Fífurnar - Víkingar
Braut 3: Riddarar - Skytturnar

Excel-skjal með öllum úrslitum.