Aðalfundur listhlaupadeildarinnar

Aðalfundur Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar/LSA 2018!

Verður haldinn þriðjudaginn 15. maí nk. kl. 20.00 í fundarherbergi skautahallarinnar.

Venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla um starfsemi deildarinnar á liðnu ári
  3. Skýrsla um fjárhag deildarinnar og endurskoðaðir reikningar lagðir fram
  4. Kosin deildarstjórn og tveir varamenn
  5. Önnur mál er fram kunna að koma

Óskað er eftir a.m.k. tveimur nýjum fulltrúum í stjórn. Þeir sem hafa hug á því að bjóða sig fram í stjórnarsetu hjá LSA eru beðnir um að senda póst á sitjandi formann á formadur@listhlaup.is fyrir 12. maí nk.