Karfan er tóm.
Sameiginlegt Akureyrar- og bikarmót 2017 er nú hálfnað og komið í ljós hvaða lið er bikarmeistari. Ice Hunt tryggði sér titilinn með því að leggja Víkinga í 3. umferð. Á sama tíma unnu Garpar Freyjur en það dugði ekki til þó liðin yrðu jöfn að stigum því Ice Hunt náði 10 endum en Garpar aðeins 9.
Mótið heldur áfram nú i kvöld og enn eiga öll lið möguleika á að krækja í Akureyrarmeistaratitilinn.
Garpar taka á móti Ice Hunt á braut 2 og Víkingar og Freyjur spila á braut 4.
Skorblað má nálgast hér.