Aldís gerði vel í stutta í undankeppni Ólympíuleikanna

Aldís Kara Bergsdóttir var mjög nálægt sínu besta í undankeppni Ólympíuleikanna í gær þegar hún fékk 39.92 stig fyrir stutta prógramið sitt og er í 31. sæti sem stendur. Aldís er fyrsti íslenski skautarinn til þess að taka þátt í undankeppni Ólympíuleikanna an margir af bestu skauturum heims eru á mótinu eins og t.d Alysa Liu frá Bandaríkjunum sem nú situr í efsta sæti en hún varð Bandarískur meistari bæði 2019 og 2020.

Aldís skautar frjálsa prógramið sitt á morgun en keppnin hefst kl. 8.00 á íslenskum tíma og má fylgjast með keppninni hér.