Andri Már Mikaelsson íshokkímaður SA árið 2016

Andri Már Mikaelsson hefur verið valinn íshokkímaður SA árið 2016.

Andri Már er 26 ára sóknarmaður og var fyrirliði í liði SA Víkinga sem varð Íslandsmeistari á síðasta tímabili. Andri spilaði einnig fyrir Karlalandslið Íslands á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Spáni í vor.

Andri Már er reynslumikill leikmaður þrátt fyrir ungur aldur. Hann hefur spilað íshokkí frá barnsaldri og með meistaraflokki síðan hann var 16 ára gamall. Andri hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands en einnig hefur tekið þátt í 8 heimsmeistaramótum með karlalandsliði Íslands. Hann hefur unnið 5 Íslandsmeistaratitla með SA Víkingum og tvisvar sem fyrirliði liðsins. Andri Már hefur einnig leikið erlendis en hann lék tvö tímabil í Svíþjóð með Mörrum GOIS.

Andri Már er mikill íþróttamaður og frábær fyrirmynd fyrir ungu kynslóðina. Andri var ekki alltaf besti leikmaður SA en með dugnaði og miklum metnaði hefur Andra tekist á síðustu árum að verða allra besti leikmaður SA Víkinga og einn besti leikmaður deildarinnar. Andri æfir meira en nokkur annar leikmaður SA Víkinga sem sést vel á leikstíl Andra en fáir leikmenn í deildinni búa yfir jafn mikilli yfirferð. Andri er til jafns frábær sóknarmaður sem varnarmaður og spilar alltaf líkamlega fast. Andri er ávallt með stigahæstu mönnum og er jafnan efstur í +/- tölfræði Víkinga sem sýnir hversu góður varnarmaður hann er.

Andri er mikill keppnismaður með stórt SA hjarta og leiðtogi í liði Víkinga. Skautafélag Akureyrar er stollt af að hafa Andra Má í sínum röðum og hann er sannarlega vel að nafnbótinni kominn.

Við óskum Andra Má innilega til hamingju með nafnbótina.

Andri Már Mikaelsson í leik með SA Víkingum (mynd: Ásgrímur Ágústsson)