Karfan er tóm.
Eins og við sögðum frá um liðna helgi þegar við birtum nokkrar myndir frá Bautamótinu þá sást til "alvöru"
ljósmyndara á svæðinu. Þar var á ferðinni Ásgrímur Ágústsson - Ási ljós - og eru nú komnar 50 myndir
frá honum í albúm.
Myndin með þessari frétt sýnir best áhugann sem fylgir þessum mótum. Krakkarnir láta ekki deigan síga á milli leikja heldur fara út á tjörn og spila hokkí þar í blíðunni, á skónum.