10.10.2009
Bikarmótið hefst miðvikudagskvöldið 14. október. Dregið á mánudagskvöld.
Átta lið skráðu sig til leiks í Bikarmóti Krulludeildar, sömu liðin og nú taka þátt í Akureyrarmótinu. Fyrsta umferðin verður miðvikudagskvöldið 14. október en dregið verður til fyrstu umferðar fyrir leikina í Akureyrarmótinu mánudagskvöldið 12. október. Fulltrúar liðanna eru beðnir um að mæta tímanlega til að taka þátt í drættinum.